Blogg frá Noregi =)
Ég ákvað s.s Laugardaginn 12 júlí að ég ætlaði að fytja til Noregs, búa hjá pabba mínum og yndislegu konunni hans og fara í skóla. 16 Júlí steig ég síðan uppí flugvél og var FLUTT ekki bara frá ísafirði, eins og planið var að gera eftir ár, heldur frá öllu íslandinu !!:) Sé svo innilega ekkert eftir því =) án efa sniðugasta sem ég hef framkvæmt !
Mamma,Pabbi Raggi,Sandra,Eddi,Rannveig og Sæbjörn Máni komu með mér út eins og var planið allann tímann, en við áttum að vera hérna 16-29 júlí =) Þau fóru síðan heim 29 Júlí og ég varð eftir. Við náðum að gera alveg helling á meðan þau voru hérna, Fórum í dýragarði með villtum dýrm, keyrðum og skoðuðum okkur um, fórum í sædýragarð og víkingasafn.. Ætla að setja myndir inn seinna á facebook, hef ekki getað það hingað til af einhverjum ástæðum =) En það kemur =) Við áttum s.s frábæra 2 vikur saman áður en þau fóru.
Ég er svona nokkurnvegin búin að koma mér fyrir, er búin að mála herbergið mitt og setja veggfóðrið á, búin að fá nýja rúmmið mitt og er að fara að skoða fataskáp/kommóðu svona þegar tími gefst. Er með fína hillu,sjónvarpið mitt,dvd tækið,svo á hvítu borði er ég með tölvuna mína,flakkarann,kerti og mynd af Sigurjóni :) Allt að verða voða kósý hjá mér.. Svo má ekki gleyma barnarúmminu sem fékk að fá pláss í herberginu ;) Já kæra fólk, það er mikilvægt að vera í móðursysturshlutverki, litli molinn sem er að verða svoooo alltof stór finnst voða gott að kúra hjá frænkunni sinni og fær að gista hérna hvenar sem er =) Þannig að hann verður að hafa rúm fyrir sig líka =) ( Þið hélduð í smá stund að ég væri að fara að færa ykkur fréttir ? ) ;)
PartyParty var á mínum áætlunum þegar ég fór út !! Ég er alveg búin að standa við það líka, út á hverri helgi síðan ég kom og stundum inná milli líka ;) Einu sinni edrú á bíl og þá fékk fólk held ég vægt sjokk og ég var vinsamlegast beðin um að gera þetta ekki aftur..:-P Var held ég einum of róleg ;) hehe...
Skólinn byrjar á miðvikudaginn og mig hlakkar bara til að vakna á morgnanna til þess að gera eitthvað.. ég vakna mikið um 6-7 leytið á morgnanna og geri ekki neitt allann daginn til svona 4.. þá legg ég mig í klukkutíma og held áfram að gera ekki neitt ;) Neinei, ég lifi ekki svona innantómu lífi hérna :) Finn mér alltaf eitthvað að gera =)
Veit ekki hvað ég á að segja ykkur meira... Er að hugsa um að fara að gera eitthvað =)
Langar að skilja eftir texta úr lagi sem ég er búin að hlusta mikið á uppá síðkastið, Sjonni er búin að sækja alveg hrikalega á mig og þetta lag fær mig til þess að hugsa um hann og bara hann, sakna hans alveg hrikalega...:´*
Mercy me - Homesick
And at least a thousand times I've rejoiced for you
But the reason why I'm broken, the reason why I cry
Is how long must I wait to be with you
I close my eyes and I see your face
If home's where my heart is then I'm out of place
Lord, won't you give me strength to make it through somehow
I've never been more homesick than now
Help me Lord cause I don't understand your ways
The reason why I wonder if I'll ever know
But, even if you showed me, the hurt would be the same
Cause I'm still here so far away from home
I close my eyes and I see your face
If home's where my heart is then I'm out of place
Lord, won't you give me strength to make it through somehow
I've never been more homesick than now
In Christ, there are no goodbye
And in Christ, there is no end
So I'll hold onto Jesus with all that I have
To see you again
To see you again
And I close my eyes and I see your face
If home's where my heart is then I'm out of place
Lord, won't you give me strength to make it through somehow
Won't you give me strength to make it through somehow
Won't you give me strength to make it through somehow
I've never been more homesick than now
Fullt af knúsum og kossum til ykkar sem finnst þið eiga það skilið ;)
Ekki vera feimin að skilja eftir komment, finndist það bara gaman og meira hvetjandi til þess að blogga aftur og leyfa ykkur að fylgjast með !:)
-Magga :*
Whatever it takes...
It kills me that I hurt you this way
The worst part is that I didn't even know
Now there's a million reasons for you to go
But if you can find a reason to stay
I'll do whatever it takes
To turn this around
I know what's at stake
I know that I've let you down
And if you give me a chance
Believe that I can change
I'll keep us together
Whatever it takes
She said if we're gonna make this work
You gotta let me inside even though it hurts
Don't hide the broken parts that I need to see
She said like it or not it's the way it's gotta be
You gotta love yourself if you can ever love me
I'll do whatever it takes
To turn this around
I know what's at stake
I know that I've let you down
And if you give me a chance
And give me a break
I'll keep us together
Whatever it takes
I know you deserve much better
Remember the time I told you the way that I felt
And that I'd be lost without you and never find myself
Let's hold onto each other above everything else
Start over, start over
I'll do whatever it takes
To turn this around
I know what's at stake
I know that I've let you down
And if you give me a chance
Believe that I can change
I'll keep us together
Whatever it takes
Flott lag, segir helling....
:*
Ţetta Er Alls Engin Ást
Ef til er einhver tossi í ástum
Sá titill held ég mér sæmi
Og karlmenn var ég búin að kveðja
Þau creep er afgreitt mál
Klárað dæmi
Þykist okkur blekkja
Þú er fallin fyrir honum
Það má alltaf þekkja
Þetta á veiku hnjáliðunum
- óó nei -
Hættu þetta að fela
Hann er búinn að stela þínu hjarta og hug
Óóó, ó nei, aldrei skal ég játa það nei
Svo föl og fá þú ert frá þér o-óh
Ó nei, ég segi ekki að þetta sé ást
Ég hélt ég allt slíkt hefði afgreitt
Og upprætt orsakir vandans
Að elska er unaðslegt í fyrstu,
En fyrr en varir fer allt til fjandans
Það er þvæla að þú
Þráast um með þessa lygi
Samt við sjáum að þú
Svífur um á bleiku skýi
Láttu þessu linna
Leyfðu þér að finna hversu
Gott, gott, gott þú átt
Áááá. Nei nú er nóg
Þetta er alls engin ást
Gefstu upp, þetta er gott
Sko þitt glott, þetta er ást
Nei vonlaust show þetta er alls engin ást
Af vörum lest að það sést
Þið eruð brjál ég játa ekkert
(já það erum við já![]()
Nei útrætt mál ég játa ekkert
Vertu ekki treg, þetta er gott, þetta er ást
Áááááást.
Svona upphátt ég ekki játa mína
Ást.
Getur einhver sagt mér hvaða lag þetta er ?? :-D
Á leiđinni til Reykjavíkur..
Ætla í kirkjugarðinn með bangsa og blóm...
Vildi óska að ég þyrfti ekki að fara ÞANGAÐ til þess að heilsa uppá hann....
En lífið bíður ekki uppá neitt annað...
Ég ætla að slappa mikið af í Reykjavík...
Njóta þess að vera með bróður mínum og mágkonu..
og kannski hitta nokkra vini..
Hver veit !?!
Elsk :*
Ég má til međ ađ deila međ ykkur...
www.sigurjondadi.com
Ótrúlega fallegt myndband á þessari síðu lýsir ljúfa drengnum svo vel, fullkominn pabbi,endalaust stolltur af prinsessunni,góði vinurinn og brosmildi fallegi drengurinn, vá hvað ég sakna þín sárt bangsinn minn.
verðið að dl því, linkurinn er neðst á síðunni =)
Lítið að gerast í mínu lífi þessa daganna, vinn frá 10-18, fer heim og gef púkunum að borða og kem þeim í rúmmið og síðan slappa af =) Seinustu 2 kvöld er ég búin að vera útí súðavík í nýju sjoppunni =) Ótrúlega flottur og kózý staður, mæli með að allir fari þangað og fái sér hambó og slappi af í skemmtilegu umhverfi =)
Eftir 14 daga er ég að fara til Reykjavíkur, slappa af með Guðmundu minni og svo ætla ég í kirkjugarðinn með blóm handa Sigurjóni.. Mig kvíðir fyrir því, en ég þarfnast þess að fara.. fékk aldrei að kveðja hann !:(
Jæja, ég ætla að hætta þessu væli, hef ekkert skemmtilegt að segja..
Ætla að halda áfram að horfa á sjónvarpið og telja niður dagana þartil ég losna frá ísafirði :)
Love:*
11 maí 1986...
Fæddist yndislegur strákur sem hafði allt með sér, sjarma frá A-Ö, með fallegast bros sem ég hef á ævinni séð og jafn fallegur að innan sem utan =) Hann var með mínum bestu og yndislegustu vinum í Reykjavík og við brölluðum mikið saman þegar ég bjó þar haustið 2006. :) Hann Sigurjón minn hefði orðið 22 ára í dag efað hann hefði ekki þurft að kveðja þennan heim alltof snemma :´(
Til hamingju með daginn engillinn minn :*
Passaðu vel uppá okkur hérna niðri ;)
Ég sakna þín hellings mikið bangsinn minn :*
Vá.. ţađ sem fólk getur veriđ kreisí..
Þýskur dómstóll hefur úrskurðað að tólf ára gömul múslimatelpa geti ekki sleppt sundkennslu vegna trúar sinnar.
Fjölskyldan fór í mál við skólann þegar ekki var fallist á að hún sleppti sundinu. Foeldrarnir vildu ekki að hún sæist í aðskornum sundfötum.
Skólinn reyndi að koma til móts við foreldrana með því að bjóða telpunni að synda í sokkabuxum (leggings) og bol. Foreldrarnir sögðu að það yrði ennþá hægt að sjá líkama hennar í gegnum blaut fötin.
Dómurinn komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að skylda yfirvalda til að kenna telpunni að synda vægi þyngra en brot gegn trú hennar.
Auk þess færi kennslan fram í vatni og því mjög lítill tími sem líkami hennar væri sjáanlegur.
Foreldrarnir ætla að áfrýja.
Mér finnst persónulega svo mikilvægt að kunna að synda... meina, hvað gerirðu ef þú kannt ekki að synda og dettur útí sjó ?? Þú held ég einfaldlega drepst !!
Nóg um það.. vildi bara deila þessu með ykkur =)
Ég er ekki á leiðinni að stinga af, í sumar ætla ég að vinna og vinna og vinna, vera full og vitlaus á milli og reyna að fara í alveg þónokkrar útileigur með Helgu og Hröbbu =)
Ég gerðist þó kærulaus í fyrradag, hoppaði úr vinnunni og í Símabúðina og keypti mér glænýjann síma :) Sony Ericsson W380i. Íkt flottur !!:-D
Ég á svona gráann :-D af því að fjólublái var ekki til.. langaði samt alveg í hann ;)
Ég er samt að spá í að vera kærulaus í eina helgi næsta vetur,nánartiltekið í Nóvember og skella mér til DK fyrstu helgina í þeim mánuði, bara fyllerí og versl !!:-D Ég á það alveg skilið !! haha :-D Á samt eftir að skoða þetta aðeins betur =)
Helgin er algerlega óráðin.. nema að ég er að vinna á sunnudagsmorguninn klukkan 08:30, FERMING!! og svo fer ég í 2 fermingar um daginn... skemmtilegt, eða ekki...
Mig er farið að dauðlanga til Reykjavíkur!!
Ég ætla að lesa aðeins meira.. 2 próf á morgun og mér líður eins og ég hafi ekkert lesið.. en það eru líka seinustu prófin og ÞÁ er ég komin í SUMARFRÍ frá skólanum sem ég er orðin svooooo leið á! Já kæra fólk.. skólaleiði er ekki það uppbyggilegasta í veröldinni...
Það er samt orðið leiðinlegt að skrifa hérna, það kommentar enginn og samt fullt af heimsóknum yfir hvern einasta dag.. HVAÐ ER ÞAÐ!?!?!
Jæja, farin í bili :)
And off we go...
Seinustu tvær vikur hef ég verið meira og minna uppá sjúkrahúsi, þar er gott að vera,rólegt umhverfi,ekkert utanaðkomandi áreiti eins og internet og ég tala nánast ekkert í símann þarna... En það er erfitt að sjá fólkið þarna, sem er svo lasið og á svo bágt, ég held mig mest inná herbergi hjá litlu systir þegar ég er þarna.. En þarna næ ég að hugsa helling og mikið...
Ég er t.d búin að ákveða það, eins ákveðin og ég var í vetur, að ég ætla að fresta fluttningum í eitt ár, ég nefnilega ef ég held áfram hérna í skólanum, útskrifast sem förðunarfræðingur eftir ár.. Ekki amalegt að hafa það á bakinu =)
Ég er líka búin að ákveða að hætta að reykja, ég hringdi í læknirinn minn 2 dögum eftir að ég kvaddi góða konu sem lést sama dag og ég kvaddi hana af völdum reykinga.. Það fékk mig svo til þess að hugsa,ótrúlega mikið.. Elsku Nína mín og öll fjölskyldan, ég votta ykkur samúð mína og vona að englarnir ykkar hjálpi ykkur í gegnum þessa erfiðu sorg :*
En ég er aftur á móti líka búin að komast að því, þarna uppi á sjúkrahúsi, hvað ég er mikið fiðrildi.. einn daginn langar mig að gera þetta og hinn daginn hitt, en þegar upp er staðið enda ég alltaf á sama helvítis staðnum og ég skil ekki einu sinni af hverju.. En ég held ég viti ástæðuna.. fer ekki neitt lengra útí hana hérna..
Allaveganna, sumarið er að koma,sólin er farin að skína meira og núna er klukkan að ganga tvö og ég ligg uppi í rúmmi að hlusta á fuglana, að hugsa um sumarið og allt sem hefur gengið á í vetur í mínu eyrðarlausa lífi.. það er alveg hellings mál að vera ég.. Þegar ég heyri í fuglunum svona á næturnar,loka augunum og hlusta vel, þá minnir það mig á það sem að góður vinur minn sagði einu sinni við mig þegar við lágum og vorum að spjalla saman " Ég elska að heyra í fuglunum, mér líður eins og ég sé í tjaldi" ...
Seinustu 2 mánuðir hafa verið mikið up´s and down´s hjá mér, mikið að gera, mikið að hugsa, mikið að ákveða.. Mig langar að fá svo mörg önnur tækifæri á því að gera marga aðra hluti öðruvísi.. Ég held stundum að ég sé svo misskilin að ég er farin að misskilja sjálfa mig...
Ég vildi svo óska þess að fá að sjá Sjonna minn aftur, ég fór inná msn í kvöld og ætlaði að skrifa hæ til vinkonu minnar, en skrifaði það óvart í gluggann til þess að leita af msncontact og fékk upp sjonna - Sjonni-hæææjjj. Ég verð að viðurkenna að ég fékk sting í hjartað,mundi allt í einu eftir því að hann er farin frá okkur og ég sé hann aldrei aftur.. :´( Svo vildi ég óska þess líka að ég gæti fengið að segja hæ við Sif aftur... En maður fær víst ekki alltaf það sem maður óskar sér... því miður.. en ég get allaveganna huggað mig við það að ég get farið í kirkjugarðinn til hennar og sagt hæ og horft á myndina af henni sem er á legsteininum.. svo ekta hún !! =)
Mig langar að kunna að bremsa sjálfa mig niður í einu og öllu.. mig langar að hætta að vera kærulaus og sjá hlutina í réttu ljósi og með rétta alvarleikanum í.. en hey, ég er bara 18 að verða 19 og á allt lífið frammundan.. það er samt ekki rétta hugsunin, vegna þess að það sem ég geri í dag getur og hefur alveg pottþétt áhrif á líf mitt í framtíðinni... Note to self: verður að fara að taka þér tak! og halda fast!!
Sumarið mitt er óráðið, það er svo óskipulagt að það hálfa væri hellingur.. Hafði hugsað mér að fara helgarferð til London, en það fór til fjandans, þið skiljið sem vitið.. Ég hugsaði um það í örugglega ca 10 mínotur að flytja til Svíþjóðar í sumar að leika mér.. en það fór líka til fjandans.. þið skiljið aftur sem vitið.. Ég hafði líka hugsað mér að fara í heimsókn til Pabba míns og fjölskyldu í útlöndum og láta dekra við mig í sumar, það er ekki enþá farið til fjandans, ekki ENÞÁ... En það kemur í ljós hvernig það fer... Mig langar mest að segja fokkoff við allt og alla og stinga af í ferðalag eitthvert útí heim, og ég get svo svarið það, að ef ég ætti peningana til þess þá væri ég líklegast að skoða flugfar einhvert lengst útí heim, án þess að nokkur vissi af því ... ;) Ætli samt sumarið mitt verði ekki bara vinna vinna vinna og svo fyllerísútileigur með Helgu og Hröbbu, Reykjanes,Hörgshlíð og fullt af fleirri spennandi stöðum sem hægt er tjalda,grilla,drekka fullt af bjór,malibu og hvítvíni og hafa það fínt, bara við stelpurnar =) Lífið verður ljúft, ef þetta fer ekki til fjandans líka ;)
Það er allt að fara til fjandans og ég ætla að halda áfram að vera kærulaus og vitlaus, njóta þess að eiga enga peninga, vera ein og einmanna og kannski spurning um að reyna að byrja uppá nýtt ?!? Hvernig, ég veit ekki !?! Hvar?? ég hef ekki hugmynd, reyna hérna á ísafirði fyrst, gefa því séns í eitt ár !?! Hver veit hvað gerist !?
vá, ég er að brainstorma hérna...
Ég ætla að fara að horfa á friends í staðin fyrir að læra fyrir próf...
HVAÐ!?!?
Ég er kærulaus....
Kúra !!!!!!!
Jæja, ætla bara að láta heyra aðeins í mér =)
Helgin var ÆÐI, ég og Helga fórum á laugardaginn útá sjó með JónÞóri,Óskar og Skúla ;) Það var svo frábært veður og sjórinn sléttur og æðislegur, ég varð ekkert sjóveik :-D Skemmti mér frábærlega =) Var síðan að vinna á föstudagskvöldinu á Mannakorn tónleikunum,fór síðan og litaði Kristínu Jónínu og svo aftur að vinna á Edinborg að ganga frá salnum eftir tónleikana, fékk líka góða hjálp !:* Fór síðan heim í sturtu, rúnt með Helgu og síðan heim að kúra =) Vaknaði á laugardeginum,fór útá sjó, var komin heim um 6, lagði mig til hálf 9, fékk heimsókn um 10 og fór síðan að vinna klukkan 11. Var búin um hálf 5 og þá bara beinustu leið heim í bólið að kúra.. æðipæði !!:) Sunnudagurinn fór í eintóma leti og meiri leti, Kúrði uppí rúmi allann daginn og fór síðan að læra seinnipartinn. Síðan um hálf 11 fór ég að passa hjá Þórey í góðum félagsskap og naut þess í botn að knúsa Bóas þegar hann vaknaði:) Var komin heim um hálf 5 leytið og skreið beint uppí rúm að kúrakúrakúra...
Dagurinn í dag fór lærdóm,rúnt og vinnu.. bara kósý =) Ætla síðan að nota fríið mitt á fimmtudaginn í að vera útí sveit að læra :) Allann daginn! :)
Ég var að skoða bloggin mín frá því að ég bjó í bænum og var í reykjavík, Sigurjón minn er nefndur í svooo mörgum, alveg hrúast upp minningar !:( Leiðinlegtleiðinlegt, mig langar að sjá hann aftur,sjá fallega brosið hans aftur, bara einu sinni en.. ekki mikið sem ég bið um, en NEI!! það er ekki hægt að uppfylla ósk mína!:'( Lífið er svo ósanngjarnt !
Ég fór í dag/kvöld á Flateyri, er búin að vera svo skrítin í hausnum seinustu daga, í kirkjugarðinn til Sifjar... það gaf mér hellings hugarró að fá að heilsa uppá hana.. Vildi óska að ég gæti séð hana, bara einu sinni enn..
Ég er farin að sofa kæra fólk, sofið vel og góða nótt:*
Sigurjón Dađi Óskarsson...
Dáinn 8.04.08.

Ég fékk þær fréttir að þú værir farinn frá okkur, ég vildi ekki trúa því og það varð ekki raunverulegt fyrr en pabbi þinn hringdi í mig í morgun og staðfesti þessar fréttir. Ég hafði aldrei talað við hann eða hitt hann áður, enda litla feimna ég ekkert á leiðinni heim til þín mannstu ? Þú sagðir mér hvað mamma þín væri hress og pabbi þinn sjaldan heima, aldrei bjóst ég við að tala við foreldra þína í fyrsta skipti undir þessum kringumstæðum. Við vorum alltaf á leiðinni að hittast eftir að ég flutti úr bænum, eins oft og við vorum saman þegar ég bjó í fljótaselinu.. alltaf að bílast, enda lýsti það þér best í öllum heiminum, Sigurjón bílakall. Mannstu þegar ég og Esther sóttum þig heim um klukkan 4 um nóttina og neyddum þig með á rúntinn til 7 um morguninn? Það var eini tíminn þá sem við gátum hisst, og þér fannst við svo klikkaðar. Svo um 7 keyrðum við þig heim en við héldum áfram að tala saman í sms-um þartil þú sofnaðir ? Mannstu þegar "leiðinlegi" vinur þinn var með okkur á rúntinum og læddumst í bílskúrinn í Kambaselinu til þess að setja ljós sem hann stal af bílasölu á bílinn hans ? mér leið eins og pínulitlum prakkara =) svo fór ég heim, frekar snemma og fékk bless knús frá þér.. ég vildi óska að ég gæti fengið annað knús frá þér, þósvo það væri ekki nema bara EITT!!
Þú kallaðir þig alltaf litla bangsann minn =) núna vildi ég óska að ég hafi ekki alltaf sagt "næst" því núna er ekkert næst... núna er enginn þú til þess að plata í ísrúnt eða bara spjall þegar ég kem í bæinn !! þósvo við hittumst nú ekki oft, þá töluðum við helling saman, og alltaf fékk ég fréttir af litlu prinsessunni þinni henni Viktoríu Von. Litli gimsteinninn hans pabba síns sem var svoo dugleg í öllu. ég fékk aldrei að hitta hana, þó svo að ég var búin að taka loforð af þér um að fá að kynnast henni, enn og aftur var það bara "næst".
Það hjálpaði mér helling að fá að heyra í fjölskyldunni þinni í morgun, þetta hræðilega slys er svo svakalega óraunverulegt, ég héllt í alvörunni að þetta væri ekki hægt!! þetta er alveg hlutur sem maður á að geta treyst 100%.. ég mun aldrei gera það aftur!!
Elsku Sigurjón Daði minn, þú ert kominn á betri stað þarsem þú getur passað uppá fjölskylduna þína og verið alltaf með litlu prinsessunni þinni og passað vel uppá hana !! Mig hlakkar til að fá að sjá fallegu augun þín og yndislega brosið þitt aftur og geta krúskað í bílum, farið á bílasölur og fíflast með þér !!:)
ég votta fjölskyldu Sigurjóns mína dýpstu samúðarkveðju.
þín verður sárt saknað elsku engill !!
Þín vinkona, Margrét Elly.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/09/lest_af_slysforum_a_reykjavikurflugvelli/
